Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands hafa borist ábendingar um vefsíðuna LanHeimur, sem gefur sig út fyrir að vera fjármálafyrirtæki undir eftirliti fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið vill taka fram að sú starfsemi sem auglýst er á vefsíðunni er ekki undir eftirliti þess. Vegna tilvísunar á vefsíðunni til íslensks einkahlutafélags telur fjármálaeftirlitið jafnframt rétt að upplýsa að það félag virðist ekki hafa nein tengsl við starfsemi vefsíðunnar.
Fjármálaeftirlitið vill af þessu tilefni vekja athygli á viðvörun til neytenda um stafræn fjársvik, gervigreindarsvindl og svik tengdum sýndareignum sem það birti 5. febrúar síðastliðinn.
Upplýsingar um lánveitendur og lánamiðlara eru aðgengilegar á vef Neytendastofu. Upplýsingar um eftirlitsskylda starfsemi sem fellur undir eftirlit fjármálaeftirlitsins eru aðgengilegar á vef Seðlabankans.