Fara beint í Meginmál

Eftirlitsstofnanir vara neytendur við stafrænum fjársvikum, gervigreindarsvindli og svikum tengdum sýndareignum 5. febrúar 2026

Evrópsku eftirlitsstofnanirnar á fjármálamarkaði (EBA, EIOPA og ESMA) hafa birt viðvaranir um að neytendur standi frammi fyrir vaxandi áhættu vegna stafrænna fjársvika og svindli sem knúið er áfram af gervigreind, auk þess sem sérkenni sýndareigna auka hættu á svikum og veita takmarkaðri vernd.

Með fylgja tvö upplýsingablöð sem útskýra helstu viðvörunarmerki og varúðarreglur sem neytendur ættu að hafa í huga áður en þeir taka ákvarðanir um viðskipti eða fjárfestingar, svo sem að vera vakandi fyrir gervigreindarbrögðum og líta gagnrýnum augum á óvænt skilaboð eða tækifæri sem biðja um að bregðast hratt við, jafnvel þó þau virðast koma frá fjölskyldu, vinum eða traustum aðila. Þá er einnig að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bregðast við ef fólk hefur orðið fórnarlamb svika eða svindls og lýsingu á helstu tegundum þeirra.

Sjá hér frétt frá Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni, EBA: