Seðlabanki Íslands hefur gefið út sérrit um viðbúnað fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum. Ritið er liður í að skilgreina frekar þau atriði sem huga þarf að við viðbúnað kerfisins til að halda uppi þeirri grunnþjónustu sem samfélagið reiðir sig á, svo sem greiðslumiðlun, uppgjör viðskipta, aðgengi heimila og fyrirtækja að fjármunum og geta þeirra til móttöku og greiðslu fjármuna.
Í ritinu er leitast við að skýra hvaða þjónustur og innviðir eru mikilvægir fyrir nauðsynlega fjármálaþjónustu, hvernig tengsl þeirra geta magnað áhættu og valdið keðjuverkandi áhrifum og hvaða viðmið eigi að liggja til grundvallar raunhæfum viðbúnaði. Horft er á fjármálakerfið sem eina heild þar sem ábyrgðin er sameiginleg og viðbrögð þurfa að vera samhæfð. Þótt viðnámsþróttur einstakra aðila geti verið í lagi getur truflun hjá einum aðila breiðst út um fjármálakerfið. Truflanir í nauðsynlegri fjármálaþjónustu geta þannig haft keðjuverkandi áhrif með víðtækum áhrifum á fjármálastöðugleika og þjóðarbúið allt. Hlutverk Seðlabanka Íslands er að móta þessa umgjörð, stuðla að samhæfingu og fylgja því eftir að viðnámsþróttur sé nægur í ljósi þeirrar áhættu sem uppi er hverju sinni.
Ritið er hið tuttugasta og fyrsta í röð Sérrita bankans.