Fara beint í Meginmál

Seðlabanki Íslands varar fjármálamarkað við þróun gervigreindar og áhrifum á netöryggi 6. maí 2026

Seðlabanki Íslands vekur athygli á þróun í gervigreind sem dregið getur úr netöryggi. Þessi þróun breytir eðli netógna og kallar á aukna árvekni hjá fjármálafyrirtækjum og öðrum lykilaðilum í fjármálakerfinu.

Seðlabankinn hvetur aðila á fjármálamarkaði sem og önnur fyrirtæki til að fylgjast grannt með þessari þróun og meta áhrif hennar á eigin starfsemi og öryggi.

Nánari umfjöllun um þetta er að finna í dreifibréfi Seðlabanka Íslands sem sent hefur verið eftirlitsskyldum aðilum.