Evrópsku eftirlitsstofnanirnar EBA, EIOPA og ESMA (ESA-stofnanirnar) hafa birt sameiginlega yfirlýsingu um net- og upplýsingatækniáhættu sem stafað getur af háþróuðum gervigreindarlíkönum (e. frontier AI models).
Yfirlýsingin fylgir eftir viðvörun Evrópska kerfisáhætturáðsins (ESRB) um kerfislæga netáhættu vegna þróunar slíkra líkana, sem Seðlabanki Íslands vakti athygli á í júlí sl.
Seðlabankinn vekur sérstaka athygli eftirlitsskyldra aðila á viðauka yfirlýsingarinnar, þar sem settar eru fram hagnýtar aðgerðir sem fjármálafyrirtæki geta tekið til skoðunar nú þegar. Þar er meðal annars fjallað um að draga úr mögulegum árásarfleti, hraða veikleikagreiningu og öryggisuppfærslum, efla vöktun og greiningu netógna, styrkja stjórnarhætti og öryggi aðfangakeðja og bæta viðnámsþrótt og viðbragðsgetu.
Eftirlitsskyldir aðilar eru hvattir til að kynna sér yfirlýsinguna og þær aðgerðir sem tilgreindar eru í viðauka hennar og meta þær með hliðsjón af eigin starfsemi og áhættusniði.