Fara beint í Meginmál

Afgangur á viðskiptajöfnuði 45,7 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi 2024 – hrein staða við útlönd jákvæð um 40,2% af VLF 3. desember 2024

Á þriðja ársfjórðungi 2024 var 45,7 ma.kr. afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 84 ma.kr. betri útkoma en ársfjórðunginn á undan og 40,9 ma.kr. lakari útkoma en á sama fjórðungi árið 2023. Halli á vöruskiptajöfnuði var 76 ma.kr. en 140,5 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. (Sjá á vef Hagstofunnar).

Frumþáttatekjur skiluðu 6,6 ma.kr. halla og rekstrarframlög 12,2 ma.kr. halla (tafla 1).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2024 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Tafla 1: Greiðslujöfnuður (ma.kr.)

2024/32024/22024/12023/42023/2
Viðskiptajöfnuður45,7-38,3-33,7
-14,3
45,7
   Vöruskiptajöfnuður-76,0-89,2-52,3-77,8-76,0
   Þjónustujöfnuður140,567,417637,3140,5
   Jöfnuður frumþáttatekna-6,6-2,112,339,2-6,6
   Rekstrarframlög, nettó-12,2
-14,4
-11,3
-13,0
-12,2
Jöfnuður fjárframlaga-0,4-1,4-0,8-1,4-0,4
Fjármagnsjöfnuður39,2
-49,5
20,2
-4,439,2
   Bein fjárfesting-46,7-12,9
11,021,3-46,7
   Verðbréf28,596,0-201,696,028,5
   Afleiður-2,71,5-0,1-3,7-2,7
   Önnur fjárfesting69,2-112,691,1-122,169,2
   Gjaldeyrisforði-9,1-21,4119,84,0-9,1
   Sekkjur og vantalið, nettó-6,1
-9,9
54,7
11,2-6,1
Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.793 ma.kr. eða 40,2% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 130 ma.kr. eða 2,9% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.351 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.558 ma.kr. Á fjórðungnum batnaði staðan um 39 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Erlendar eignirjukust um 76 ma.kr. og skuldir um 37 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar juku virði eigna á ársfjórðungnum um 103 ma.kr. og minnkuðu virði skulda um 5 ma.kr. og leiddu því til 109 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar lækkaði um tæp 0,4% á fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hækkaði um 6% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði um 8,9%.

Tafla 2: Breyting á erlendri stöðu þjóðarbúsins á milli ársfjórðunga (ma.kr.)

Staða í lok 2024/3FjármagnsjöfnuðurGengis- og verðbreytingarAðrar breytingarStaða í lok 2024/2
Erlendar eignir, alls6.35176
103
16
6.199
   Bein fjárfesting1.035-908990
   Verðbréf3.682537403.521
   Afleiður*15-31308
   Önnur fjárfesting72045-49767
   Gjaldeyrisforði899-9210912
Erlendar skuldir, alls4.55837
-5
24
4.446
   Bein fjárfesting1.74937-17171.541
   Verðbréf1.540242501.602
   Afleiður*90-4014
   Önnur fjárfesting1.259-24-9161.290
Hrein staða þjóðarbúsins1.79339109
-17
1.753
Hlutfall af VLF (%)40,2
0,92,4
-0,439,9

*Aðrar breytingar eru taldar undir gengis- og verðbreytingum fyrir afleiður

Frétt nr. 19/2024