Fara beint í Meginmál

Björg Management ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða 1. apríl 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Björg Management ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 1. apríl 2026, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.