Fara beint í Meginmál

Árs­fund­ur Alþjóðagjal­dey­ris­sjóðsins 2026 19. október 2026

Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fór fram í Bangkok í Taílandi í liðinni viku.  Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika tóku þátt í fundinum ásamt öðrum fulltrúum Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn átti jafnframt fundi með sérfræðingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, kjördæmi Norður- og Eystrasaltslanda hjá sjóðnum og fulltrúum lánshæfismatsfyrirtækja og alþjóðlegra fjármálafyrirtækja. Þá sóttu fulltrúar bankans málstofur á málefnasviði Seðlabankans.

Seðlabankastjóri er fulltrúi Íslands í sjóðsráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (e. Board of Governors), æðstu stofnun sjóðsins, og sat því ársfund sjóðsins. Að þessu sinni átti Ísland jafnframt sæti í fjárhagsnefnd sjóðsins (e. International Monetary and Financial Committee, IMFC) fyrir hönd kjördæmis Norður- og Eystrasaltslanda á ársfundinum. Fjárhagsnefndin fundar tvisvar á ári og í henni sitja 25 fulltrúar aðildarríkja sjóðsins. Fyrir hönd kjördæmisins tóku Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þátt í fundum nefndarinnar. Sem fulltrúi kjördæmisins í fjárhagsnefndinni gaf seðlabankastjóri út  yfirlýsingu fyrir hönd þess. Fjárhagsnefndin er ráðgefandi fyrir sjóðsráðið og mótar áherslur í starfi framkvæmdarstjórnar sjóðsins (e. Executive Board).

Á fundum fjárhagsnefndarinnar kynnti sjóðurinn mat sitt á stöðu og horfum í heimsbúskapnum, fjármálastöðugleika og ríkisfjármálum. Jafnframt kynnti framkvæmdastjóri sjóðsins, Kristalina Georgieva, stefnuyfirlýsingu sína (e. Global Policy Agenda). Í stefnuyfirlýsingunni og erindum annarra forsvarsmanna sjóðsins kom fram að heimshagkerfið hefði sýnt umtalsverðan viðnámsþrótt þrátt fyrir röð áfalla. Horfur einkennist þó áfram af mikilli óvissu og því sé mikilvægt að vinna að því að efla viðnámsþrótt, m.a. með því að endurbyggja svigrúm í ríkisfjármálum. Hagvaxtarspá sjóðsins á heimsvísu er lítið breytt frá vorfundi sjóðsins í apríl sl., en umfangsmikil fjárfesting í gervigreind hefur að hluta mildað neikvæð efnahagsleg áhrif aukinnar spennu í alþjóðlegum stjórnmálum. Yfirskrift ritsins World Economic Outlook var að þessu sinni Viðnámsþrótti teflt í tvísýnu, brýnar ákvarðanir (e. Resilience Under Strain, Urgent Choices). Í stefnuyfirlýsingu sjóðsinsvar áhersla lögð á mikilvægi alþjóðasamstarfs og að lönd tækjust saman á við sameiginlegar áskoranir.

Hér má finna stefnuyfirlýsingu framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins:

The Managing Director's Global Policy Agenda, AM 2026: Navigating an Uncertain World.

Þar sem ekki náðist nú, fremur en síðustu ár, samkomulag um orðalag yfirlýsingar fjárhagsnefndarinnar  (IMFC Communiqué) í heild gaf formaður nefndarinnar, Mohammed Aljadaan, fjármálaráðherra Sádi-Arabíu, út yfirlýsingu  (IMFC Chair’s Statement) sem í meginefnum  var studd af fulltrúm nefndarinnar. Hér má finna yfirlýsinguna:

IMFC Chair's Statement.

Yfirlýsingu Ásgeirs Jónssonar, seðlabankastjóra og fulltrúa kjördæmis Norður- og Eystrasaltslanda í fjárhagsnefndinni (e. IMFC Statement), má nálgast hér:

IMFC Statement by Ásgeir Jónsson, Governor of Central Bank of Iceland, on behalf of Denmark, Republic of Estonia, Finland, Iceland, Republic of Latvia, Republic of Lithuania, Norway, Sweden.

Margvísleg önnur gögn sem varða nýjasta mat sjóðsins á stöðu og horfum í heimsbúskapnum um þessar mundir má finna á vef sjóðsins:

Sjá hér á vef Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Meðfylgjandi eru myndir frá fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins af Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og auk þess mynd þar sem seðlabankastjóri situr fund kjördæmis Norður- og Eystrasaltsríkja.