Bein fjárfesting erlendra aðila innanlands
Í árslok 2024 var heildar bein fjármunaeign erlendra aðila á Íslandi 1.572 ma.kr. Beint fjárfestingarflæði til Íslands nam 339 ma.kr. á árinu.
Flæði hlutafjárviðskipta erlendra aðila í innlendum félögum nam 369 ma.kr á árinu 2024. Á sama tíma voru áhrif endurfjárfestingar á heildarflæði 2,5 ma.kr til hækkunar.
Hlutfall eiginfjáreignar af heildar beinni fjármunaeign í lok ársins 2024 var 65% og restin í formi lánsfjármagns milli eignatengdra aðila.
Stærstu beinu fjárfestingarlöndin í árslok voru Lúxemborg, Bandaríkin, Sviss og Holland.
Bein fjárfesting erlendra aðila innanlands er að stærstum hluta í félögum tengdum álframleiðslu og lyfjaiðnaði. Um 48% af beinni fjármunaeign er í eignarhaldsfélögum en stór hluti þeirra félaga tengjast áðurnefndum atvinnugreinum.
Bein fjárfesting innlendra aðila erlendis
Í árslok 2024 var bein fjármunaeign innlendra aðila erlendis 759 ma.kr. en beint fjárfestingarflæði var neikvætt um 9 ma.kr. á árinu.
Af heildar beinni fjármunaeign innlendra aðila erlendis var 87% í formi eiginfjár.
Um 53% beinnar fjármunaeignar er skráð í Hollandi en megnið af því fjármagni er í eignarhaldsfélögum.
Stærstu beinu fjárfestarnir eru félög sem tengjast lyfjaiðnaði, tækja- og vélaframleiðslu sem og sjávarútvegi. Af fjárfestingu innlendra aðila erlendis er tæpur helmingur í eignarhaldsfélögum sem að stærstum hluta tengjast áðurnefndum atvinnugreinum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is