Fara beint í Meginmál

Brot Gildis lífeyrissjóðs á fjárfestingarheimildum 18. júní 2026

Hinn 11. nóvember 2025 barst tilkynning frá Gildi lífeyrissjóði til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um að tiltekin fjárfesting í vísitölusjóði séreignardeildar sjóðsins hafi á ákveðnu tímabili farið í 11,5% og þar með farið yfir lögbundin 10% mörk í heildareignum sama útgefanda samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrisréttinda.

Að teknu tilliti til þeirra gagna og upplýsinga sem fjármálaeftirlitið aflaði í tengslum við athugunina var það niðurstaða fjármálaeftirlitsins að brotið hefði verið gegn nánar tilgreindum ákvæðum laga nr. 129/1997, sbr. reglugerð nr. 590/2017 á tilgreindu tímabili.

Nánar er greint frá niðurstöðunni hér: