Fara beint í Meginmál

Brunnur Ventures GP ehf. skráð sem rekst­r­araðili sé­r­hæfðra sjóða 11. desember 2025

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Brunn Ventures GP ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 9. desember 2025, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.