Fara beint í Meginmál

Dreifibréf vegna greiðslumiðla með takmörkuð afnot 18. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér dreifibréf nr. 19/2026 til aðila sem gefa út gjafakort, gjafabréf eða sambærilegar greiðslulausnir, meðal annars í smáforritum. Í dreifibréfinu er vakin athygli á tilteknum undanþágum frá gildissviði laga nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu og tilkynningarskyldu sem kann að fylgja slíkri starfsemi.

Gjafakort og sambærilegar afurðir sem eingöngu er hægt að nota hjá útgefanda þeirra falla almennt utan gildissviðs laga um greiðsluþjónustu, enda er þá að jafnaði um að ræða fyrirframgreiðslu fyrir vörur eða þjónustu. Útgáfa annarra greiðslumiðla kann hins vegar að fela í sér greiðsluþjónustu. Slík starfsemi getur þó fallið utan gildissviðs laganna á grundvelli sérstakra undanþága. Undanþágurnar taka annars vegar til greiðslumiðla sem einungis er hægt að nota til kaupa á vörum eða þjónustu á athafnasvæði útgefanda eða á athafnasvæði nets þjónustuveitenda samkvæmt viðskiptasamningi hvers þeirra við útgefanda og hins vegar til kaupa á afmörkuðu úrvali vara og þjónustu. Aðilum sem veita þjónustu sem fellur undir framangreindar undanþágur ber að tilkynna starfsemi sína til fjármálaeftirlits Seðlabankans ef heildarfjárhæð greiðslna á næstliðnum 12 mánuðum fer yfir eina milljón evra. Falli starfsemin ekki undir undanþágurnar kann hún að vera starfsleyfisskyld.

Í dreifibréfinu er farið yfir skilyrði undanþáganna, hvernig meta skuli hvort þær eigi við og tilkynningarskyldu sem þeim fylgir. Jafnframt eru viðkomandi aðilar hvattir til að meta hvort starfsemi þeirra feli í sér útgáfu greiðslumiðils í skilningi laganna og, ef svo er, hvort undanþágurnar eigi við og hvort tilkynningarskylda hafi stofnast.

Nánari upplýsingar er að finna í dreifibréfi Seðlabanka Íslands nr. 19/2026.