Fara beint í Meginmál

Efnahagur Seðlabanka Íslands í júlí 2024

Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 933,9 ma.kr. í lok júlí og hækkuðu um 11 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 35,6 ma.kr. og hækkuðu um 461 m.kr. og erlendar eignir námu 898,3 ma.kr. og hækkuðu um 10,6 ma.kr.

Skuldir Seðlabanka Íslands námu 833,2 ma.kr. og hækkuðu um 3,2 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 753,6 ma.kr. og hækkuðu um 3 ma.kr. og erlendar skuldir námu 79,6 ma.kr. og hækkuðu um 209 m.kr.

Staða gjaldeyrisforðans nam 898,1 ma.kr. og hækkaði um 10,6 ma.kr. í júlí.

Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is