Fara beint í Meginmál

Efnahagur Seðlabanka Íslands í febrúar 2024

Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 830,6 ma.kr. í lok febrúar og hækkuðu um 10,1 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 36 ma.kr. og hækkuðu um 95 m.kr. og erlendar eignir námu 794,6 ma.kr. og hækkuðu um 10 ma.kr.

Skuldir Seðlabanka Íslands námu 736,3 ma.kr. og hækkuðu um 12,2 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 656,6 ma.kr. og hækkuðu um 11,4 ma.kr. og erlendar skuldir námu 79,7 ma.kr. og hækkuðu um 798 m.kr.

Staða gjaldeyrisforðans nam 794,4 ma.kr. og hækkaði um 9,9 ma.kr. í febrúar.

Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is