Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 989,2 ma.kr. í lok febrúar og lækkuðu um 2,3 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 33 ma.kr. og lækkuðu um 245 m.kr. og erlendar eignir námu 956,2 ma.kr. og lækkuðu um 2,1 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 913,9 ma.kr. og lækkuðu um 3,4 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 842,5 ma.kr. og lækkuðu um 2,6 ma.kr. og erlendar skuldir námu 71,4 ma.kr. og lækkuðu um 727 m.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 956 ma.kr. og lækkaði um 2,1 ma.kr. í febrúar.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is