Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 820,4 ma.kr. í lok janúar og lækkuðu um 7,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 35,8 ma.kr. og lækkuðu um 187 m.kr. og erlendar eignir námu 784,6 ma.kr. og lækkuðu um 7,5 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 723,9 ma.kr. og lækkuðu um 1,6 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 645,0 ma.kr. og lækkuðu um 1,7 ma.kr. og erlendar skuldir námu 78,9 ma.kr. og hækkuðu um 59 m.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 784,4 ma.kr. og lækkaði um 7,5 ma.kr. í janúar.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is