Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 991,6 ma.kr. í lok janúar og lækkuðu um 10,4 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 33,2 ma.kr. og lækkuðu um 321 m.kr. og erlendar eignir námu 958,3 ma.kr. og lækkuðu um 10,1 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 917,3 ma.kr. og lækkuðu um 6,4 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 845,1 ma.kr. og lækkuðu um 4,6 ma.kr. og erlendar skuldir námu 72,1 ma.kr. og lækkuðu um 1,8 ma.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 958,1 ma.kr. og lækkaði um 10,1 ma.kr. í janúar.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is