Fara beint í Meginmál

Efnahagur Seðlabanka Íslands í mars 2024 8. apríl 2024

Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 947,7 ma.kr. í lok mars og hækkuðu um 117 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 35,1 ma.kr. og lækkuðu um 906 m.kr. og erlendar eignir námu 912,6 ma.kr. og hækkuðu um 118 ma.kr.

Skuldir Seðlabanka Íslands námu 849 ma.kr. og hækkuðu um 112,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 768,9 ma.kr. og hækkuðu um 112,3 ma.kr. og erlendar skuldir námu 80,2 ma.kr. og hækkuðu um 434 m.kr.

Staða gjaldeyrisforðans nam 912,4 ma.kr. og hækkaði um 118 ma.kr. í mars.

Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is