Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 903 ma.kr. í lok mars og lækkuðu um 33,6 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 37,3 ma.kr. og lækkuðu um 628 m.kr. og erlendar eignir námu 865,7 ma.kr. og lækkuðu um 33 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 826,5 ma.kr. og lækkuðu um 10,1 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 750,5 ma.kr. og lækkuðu um 7,4 ma.kr. og erlendar skuldir námu 76 ma.kr. og lækkuðu um 2,7 ma.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 865,5 ma.kr. og lækkaði um 33 ma.kr. í mars.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is