Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 976,2 ma.kr. í lok mars og lækkuðu um 13 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 31,5 ma.kr. og lækkuðu um 1,5 m.kr. og erlendar eignir námu 944,7 ma.kr. og lækkuðu um 11,5 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 911,6 ma.kr. og lækkuðu um 2,3 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 839 ma.kr. og lækkuðu um 3,5 ma.kr. og erlendar skuldir námu 72,6 ma.kr. og hækkuðu um 1,2 ma.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 944,5 ma.kr. og lækkaði um 11,5 ma.kr. í mars.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is