Fara beint í Meginmál

Efnahagur Seðlabanka Íslands í nóvember 2025 5. desember 2025

Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 1.022,8 ma.kr. í lok nóvember og hækkuðu um 35,4 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 33,4 ma.kr. og lækkuðu um 237 m.kr. og erlendar eignir námu 989,5 ma.kr. og hækkuðu um 35,6 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 934,2 ma.kr. og hækkuðu um 20,9 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 859,6 ma.kr. og hækkuðu um 19,5 ma.kr. og erlendar skuldir námu 74,6 ma.kr. og hækkuðu um 1,3 ma.kr.

Staða gjaldeyrisforðans nam 989,3 ma.kr. og hækkaði um 35,6 ma.kr. í nóvember.

Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is