Björk Sigurgísladóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Guðrún Finnborg Þórðardóttir, verkefnastjóri í Seðlabankanum, fluttu erindi á málstofu vinnuhóps EFTA um fjármálaþjónustu þar sem fjallað var um einföldun fjármálaeftirlits og leiðir til að bæta aðgengi að upplýsingum um regluverk á fjármálamarkaði.
Björk fjallaði um nálgun Seðlabanka Íslands að einföldun í fjármálaeftirliti og þau verkefni sem ráðist hefur verið í. Markmiðið er að draga úr flækjustigi regluverks og eftirlits og auka skilvirkni, án þess að það komi niður á viðnámsþrótti fjármálakerfisins eða vernd neytenda og fjárfesta.
Guðrún Finnborg fjallaði um aðgerðir Seðlabankans til að auðvelda aðgengi að upplýsingum um löggjöf og eftirlitsframkvæmd. Meðal þeirra eru öflugri leitarvél á heimasíðunni fyrir löggjöf og tengd málefni, sérstakar síður um nýja og væntanlega löggjöf, fræðslufundir og áhersluverkefni um spurningar og svör. Einnig var kynnt notkun á gervigreind við vöktun á þróun löggjafar á fjármálamarkaði.
Í erindi sínu sagði Björk meðal annars: „Einföldun er ekki tímabundið verkefni heldur krefst hún stöðugrar athygli og eftirfylgni.”
Glærur sem Björk og Guðrún studdust við í erindum sínum eru hér:
Simplifying financial supervsion, and, Enhancing access to information on financial regulation