Fara beint í Meginmál

Endurskoðuð Almenn viðmið og aðferðafræði vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum 10. mars 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur gefið út endurskoðuð Almenn viðmið og aðferðafræði vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum. Drög að hinum endurskoðuðu viðmiðum voru send fjármálafyrirtækjum og Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu til umsagnar 19. desember 2025 með umræðuskjali nr. 2/2025. Frestur til að skila umsögnum rann út 19. janúar 2026 og bárust þrjár umsagnir.

Markmið hinna almennu viðmiða er að skilgreina og kynna með almennum hætti aðferðafræði og framkvæmd könnunar- og matsferlis fjármálaeftirlitsins. Aðferðafræðin er í samræmi við viðmiðunarreglur Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) um könnunar- og matsferli og álagspróf (EBA/GL/2022/03). Viðmiðunarreglur EBA fela í sér ítarlegri lýsingu á aðferðafræði við könnunar- og matsferli sem fjármálaeftirlitið starfar samkvæmt við eftirlitsframkvæmd sína og vísast því almennt til þeirra til nánari skýringa. Vakin er athygli á því að unnið er að endurskoðun viðmiðunarreglnanna (EBA/CP/2025/21) og er gert ráð fyrir að nýjar viðmiðunarreglur taki gildi 1. janúar 2027 innan Evrópusambandsins. Við næstu endurskoðun fjármálaeftirlitsins verður því meðal annars höfð hliðsjón af þeim.

Við endurskoðun almenna hluta viðmiðanna nú voru lagatilvísanir uppfærðar og ýmsar minni háttar efnislegar breytingar og leiðréttingar gerðar, auk þess sem uppröðun kafla breyttist. Viðaukunum hefur fækkað úr þremur í tvo og eru þeir nú báðir á íslensku. Viðauki I fjallar, eins og áður, um viðmið við mat á viðbótareiginfjárþörf vegna útlána- og samþjöppunaráhættu og markaðs- og fastvaxtaáhættu, auk þess sem viðmiðum við mat á viðbótareiginfjárþörf vegna viðskiptalíkans og eignarhalds í vátryggingafélagi, stjórnarhátta og innra eftirlits og rekstraráhættu hefur verið bætt við. Viðauki II fjallar um eiginfjárauka. Þar hafa lagatilvísanir verið uppfærðar, auk þess sem minni háttar orðalagsbreytingar og leiðréttingar hafa verið gerðar.

Viðmið um viðbótareiginfjárþörf vegna eignarhalds fjármálafyrirtækis í vátryggingafélagi, sem nemur 50% eða stærri hlut, byggist á því sjónarmiði að slíkur eignarhlutur skapi sérstaka eigendaáhættu umfram hefðbundna hlutabréfaáhættu.  Fjármálafyrirtæki sem á svo stóran hlut er líklegra en ella til að styðja fjárhagslega við vátryggingafélagið  lendi það í fjárhagslegum erfiðleikum, m.a. vegna orðsporsáhættu, samþættingar starfsemi og heildarhagsmuna samstæðunnar. Umræddu viðmiði er ætlað að fanga þessa áhættu. Engin viðbótareiginfjárkrafa reiknast ef gjaldþolshlutfall vátryggingafélags er yfir 1,5 en eykst eftir því sem gjaldþolshlutfall lækkar og líkur aukast á að eigandi þurfi að leggja fram viðbótarfé. Að gefnu tilefni er athygli vakin á því að viðmiðið hefur tekið breytingum eftir umsagnarferlið í samræmi við sjónarmið sem fram komu hjá umsagnaraðilum.