Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta á árinu 2024. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2025. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2026 til næstu endurskoðunar að ári.
Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á þriggja ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:
Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
· Engin breyting á gjaldmiðlum
Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):
· Suðurkóreskt vonn dettur út
· Tyrknesk líra bætist við
· Ísraelskur sikill bætist við
Í vöruviðskiptavogum eykst vægi kínverska júansins og bandaríkjadals nokkuð milli ára, en á móti minnkar vægi evrunnar. Í þjónustuviðskiptum eykst vægi evrunnar töluvert en á móti dregur úr vægi dönsku krónunnar og sterlingspunds. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar en þar eykst vægi kínverska júansins og bandaríkjadals mest milli ára en á móti minnkar vægi dönsku krónunnar mest.