Fyrir lítið hagkerfi sem reiðir sig í miklum mæli á stafrænar lausnir, líkt og Ísland felst sjálfstæði í greiðslumiðlun ekki í sjálfsþurftarkerfi. Það felst í að sameina öryggi sem alþjóðlegar greiðslulausnir veita og innlendan viðnámsþrótt. Þannig má treysta virkni kerfisins og að annað kerfið virki ef hitt verður fyrir áfalli.
Í erindi hans kom fram að stefna Seðlabanka Íslands varðandi greiðslumiðlun byggði á þremur meginstoðum. Í fyrsta lagi að til staðar væru fleiri en ein greiðslulausn. Nýverið hafi Seðlabanki Íslands undirritað samning við Seðlabanka Evrópu um þátttöku Íslands í TIPS, rauntímagreiðslukerfi Evrukerfisins sem væri mikilvægur liður í að efla viðnámsþrótt og hagkvæmni í greiðslumiðlun hér á landi. Seðlabankinn er auk þess að leggja lokahönd á útboð fyrir innviði sem mun einfalda einkaaðilum að bjóða upp á greiðslur fyrir vörur og þjónustu með millifærslum . Með því fjölgar mögulegum greiðsluleiðum. Þátttaka í TIPS ásamt fjölbreyttari greiðsluleiðum styður ekki aðeins viðnámsþrótt fjármálakerfisins heldur styrkir einnig samkeppnishæfni þess gagnvart hröðum tækniframförum á þessu sviði. Í öðru lagi styðja alþjóðleg samþætting og innlend geta hvora aðra. Í þriðja lagi væri það hlutverk seðlabanka að tryggja trausta sameiginlega innviði en láta bönkum og greiðsluþjónustuveitendum eftir nýsköpun í þjónustu við viðskiptavini.