Fara beint í Meginmál

Erlend staða þjóðarbúsins 4. ársfjórðungur 2025 5. mars 2026

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 2.189 ma.kr. eða 44,2% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 98 ma.kr. eða 2% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 7.024 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.835 ma.kr. Erlendar eignir hækkuðu um 19 ma.kr. og skuldir um 98 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Gengis- og verðbreytingar juku virði eigna á ársfjórðungnum um 297 ma.kr. og skulda um 143 ma.kr. og leiddu því til 154 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar lækkaði um 3,3% á fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hækkaði um 3% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði hækkaði um 9%.