Fara beint í Meginmál

Fjármálaeftirlit 2026 26. febrúar 2026

Ritið Fjármálaeftirlit 2026 hefur verið birt á vef Seðlabankans. Með árlegri útgáfu Fjármálaeftirlits leitast Seðlabankinn við að tryggja viðeigandi gagnsæi um störf og áherslur bankans á sviði fjármálaeftirlits.

Í ritinu er skýrt frá því hvernig bankinn vann á árinu 2025 að þeim verkefnum sem fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands eru falin í lögum auk þess sem upplýst er um helstu forgangsmál í fjármálaeftirliti í ár.