Fara beint í Meginmál

Fjármálaeftirlit á Norðurlöndum efla samstarf sitt 21. október 2026

Fjármálaeftirlit Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um aukið norrænt samstarf á sviði fjármálaeftirlits.

Með yfirlýsingunni lýsa norrænu fjármálaeftirlitin yfir vilja til enn markvissara og kerfisbundnara samstarfs en áður. Markmiðið er að móta samræmdari norræna nálgun á þeim sviðum þar sem fjármálamarkaðir, starfsemi aðila og áhættuþættir ná í auknum mæli yfir landamæri.

Í fyrstu verður áhersla á tvö verkefni, annars vegar eftirlit með markaðsmisnotkun og hins vegar innleiðingu og framkvæmd nýs regluverks um greiðsluþjónustu. Fjármálaeftirlitin einsetja sér að ná árangri á báðum sviðum fyrir næsta fund stjórnenda fjármálaeftirlitanna sem haldinn verður í Stokkhólmi í ágúst 2027.

Fyrir Seðlabanka Íslands er aukið samstarf á sviði fjármálaeftirlits mikilvægur liður í að  stuðla að aukinni samræmingu og miðlun þekkingar enda margar áskoranir og áhætta sambærileg þvert á Norðurlönd.

Yfirlýsinguna má nálgast hér: Yfirlýsing fjármálaeftirlita á Norðurlöndum

 

Samantekin atriði:

  • Yfirlýsingin var samþykkt af fjármálaeftirlitsstofnunum Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar á fundi stjórnenda stofnananna í Kaupmannahöfn dagana 27.–28. ágúst 2026.
  • Áherslusviðin tvö í samstarfinu fram til ágúst 2027 eru:
    • eftirlitsaðferðir varðandi reglur um misnotkun á markaði
    • innleiðing og beiting nýrra reglna um greiðsluþjónustu
  • Markmiðið er að stuðla að samræmdari og fyrirsjáanlegri nálgun á Norðurlöndum varðandi eftirlit á sviðum sem einkennast af umfangsmikilli starfsemi yfir landamæri.