Fara beint í Meginmál

Fjármálaeftirlitsdagurinn haldinn í annað sinn 23. mars 2026

Fimmtudaginn 19. mars, stóð Seðlabanki Íslands fyrir fjármálaeftirlitsdeginum. Dagurinn er vettvangur til að fjalla um ýmis áherslumál í fjármálaeftirliti en einnig er hann hugsaður sem samtalsvettvangur fyrir eftirlitsskylda aðila og starfsfólk Seðlabankans sem starfar við fjármálaeftirlit. Viðburðurinn er liður í því að auka gagnsæi, upplýsingagjöf og fræðslu í fjármálaeftirliti og um leið að vera vettvangur til að hlusta eftir sjónarmiðum frá aðilum á markaði. Viðburðurinn er árlegur og haldinn fyrri hluta hvers árs.

Á fundinum var fjallað um áherslu, stefnu og verkefni á sviði fjármálaeftirlits, m.a. með tilliti til einföldunar í eftirliti. Til máls tóku Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, Linda Kolbrún Björgvinsdóttir, framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Seðlabanka Íslands, Berglind Rut Hilmarsdóttir, sérfræðingur í varúðareftirliti og Kristín Logadóttir, forstöðumaður í varúðareftirliti.

Gísli Óttarsson, framkvæmdastjóri varúðareftirlits Seðlabanka Íslands stýrði pallborðsumræðum en í pallborði voru seðlabankastjóri, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.

Fundarstjóri var Stefán Rafn Sigurbjörnsson.

Meðfylgjandi eru glærur sem nýttar voru á deginum: Fjármálaeftirlitsdagurinn 2026

Hér má nálgast erindi varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits: Erindi Bjarkar Sigurgísladóttur, varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits, á fjármálaeftirlitsdeginum

Hér má nálgast upplýsingar um einföldun við framkvæmd fjármálaeftirlits: Einföldun við framkvæmd fjármálaeftirlits

Hér má nálgast ritið Fjármálaeftirlit: Fjármálaeftirlit

Hér má nálgast stefnumarkandi áherslur í fjármálaeftirliti: Stefnumarkandi áherslur í fjármálaeftirliti