Fara beint í Meginmál

Fjármálareikningar fjármálafyrirtækja 3. ársfjórðungur 2025 8. desember 2025

Heildarfjármunaeign fjármálafyrirtækja á 3. ársfjórðungi 2025 nam 21.704,8 ma. kr. og hafði hækkað um 377,5 ma. kr. frá 2. ársfjórðungi 2025. Helstu breytingar voru þær að hlutafjáreign hækkaði um 235,0 ma.kr. Heildarskuldir fjármálafyrirtækja námu 21.880,9 ma.kr. og hækkuðu um 375,2 ma.kr. á ársfjórðungnum. Helstu breytingar voru þær að sjóðir og innstæður hækkuðu um 95,4 ma.kr. Nettó fjármunaeign fjármálafyrirtækja á 3. ársfjórðungi 2025 var neikvæð um 176,1 ma.kr.

Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til heimila í lok 3. ársfjórðungs 2025 var 3.271,6 ma.kr. þar af námu skuldir heimila með veði í íbúð 2.878,1 ma.kr. Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til fyrirtækja í lok 3. ársfjórðungs 2025 var 2.791,8 ma.kr. að teknu tilliti til niðurfærslna. Eign fjármálafyrirtækja í markaðsskuldabréfum fyrirtækja nam 622,5 ma.kr.

Fjármálareikningar eru birtir sem heildar efnahagsyfirlit fjármálafyrirtækja en einnig eru birtar töflur sem skipta þeim niður annars vegar eftir tegundum fjármálafyrirtækja og hins vegar eftir mótaðilum.

Tímaraðir eru birtar fyrir heildina og einnig skiptar niður eftir tegundum fyrirtækja.  Til viðbótar eru birtar tímaraðir með skuldum fyrirtækja við fjármálafyrirtæki, annars vegar skipt eftir lánveitendum og hins vegar eftir tegundum lána.  Einnig eru birtar tímaraðir með eign fjármálafyrirtækja á skuldabréfum útgefnum af atvinnufyrirtækjum. Tímaröðum með skuldum heimila við fjármálafyrirtæki er skipt eftir lánveitendum og tegundum lána.  Einnig er birt tímaröð um skuldir heimila með veði í íbúð sundur liðuð eftir tegundum lána.

Fjármálareikningar eru unnir samkvæmt aðferðafræði sem byggir á þjóðhagsreikninga staðli Evrópusambandsins (ESA2010) og staðli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um hagtölur peninga- og fjármála.

Hagstofa Íslands birtir fjármálareikninga fyrir allt hagkerfið á vefsíðu sinni

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is