Fara beint í Meginmál

Flóki Halldórsson ráðinn framkvæmdastjóri sviðs fjármálastöðugleika 16. september 2026

Gengið hefur verið frá ráðningu Flóka Halldórssonar í starf framkvæmdastjóra sviðs fjármálastöðugleika en starfið var auglýst laust til umsóknar í ágúst sl.

Flóki hefur starfað hjá Seðlabanka Íslands frá árinu 2020. Hann hóf störf sem forstöðumaður skrifstofu skilavalds. Frá júní 2025 var Flóki settur tímabundið í stöðu framkvæmdastjóra sviðs fjármálastöðugleika.

Áður starfaði Flóki sem framkvæmdastjóri Stefnis eða frá árinu 2009 til ársins 2019.

Flóki er með MBA próf frá Copenhagen Business School og B.A. í hagfræði frá Háskóla Íslands.