Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið samráðsferli um samkeppnishæfni bankakerfis Evrópu. Samráðið er liður í undirbúningi skýrslu sem framkvæmdastjórnin mun birta um sama efni síðar á þessu ári.
Samráðið beinist að samkeppnishæfni bankakerfisins innan Evrópusambandsins og á alþjóðavettvangi, virkni innri markaðarins, flækjustigi og skilvirkni regluverks. Svör hagsmunaaðila í samráðsferlinu munu veita framkvæmdastjórninni mikilvæga leiðsögn við undirbúning frekari stefnumótunar á sviði bankamála
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hvetur hagaðila til að kynna sér samráðið og koma á framfæri umsögnum. Frestur til að skila umsögnum er til 19. apríl 2026.
Nánari upplýsingar um samráðið má finna á vef framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins: Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins