Það þarf að ríkja traust á að þeir sem halda á innstæðunum séu fjárhagslega sterkir og hægt sé að nýta þessa fjármuni þótt innviðir raskist eða rafrænar tengingar rofni. Að viðhalda þessu trausti er meginverkefni Seðlabanka Íslands.
Tómas lagði áherslu á að efnahagslegt sjálfstæði í stafrænum heimi fælist ekki í því að hverfa frá alþjóðlegu samstarfi. Fyrir smáríki á borð við Ísland væri slíkt samstarf mikilvæg forsenda öryggis og hagsældar, en á sama tíma þyrfti að tryggja innlendan viðnámsþrótt og viðbúnað áður en áfall verður. Með því væri traust á peninga- og fjármálakerfinu styrkt og þar með efnahagslegt sjálfstæði.