Fara beint í Meginmál

Fundargerð frá fundi fjármálastöðugleikanefndar 21. og 22. september 2026 21. október 2026

Fjármálastöðugleikanefnd
Fjármálastöðugleikanefnd

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans er varða fjármálastöðugleika. Í fjármálastöðugleika felst að fjármálakerfið geti staðist áföll í efnahagslífi og á fjármálamörkuðum, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Á fundi nefndarinnar 21. og 22. september 2026 fékk hún kynningu á stöðu og horfum í efnahagsmálum og þáttum er varða fjármálastöðugleika. Nefndin ræddi helstu áhættuþætti fjármálastöðugleika á Íslandi og alþjóðlega þróun.

Farið var yfir þróun á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum, ytri stöðu þjóðarbúsins og gjaldeyrismarkað. Staða heimila og fyrirtækja, þróun á íbúðamarkaði og staða byggingaraðila voru rædd, ásamt viðnámsþrótti fjármálafyrirtækja og eiginfjár- og lausafjárstöðu þeirra. Nefndin ræddi einnig heildareiginfjárkröfur kerfislega mikilvægra banka, mat á kerfislegu mikilvægi fjármálafyrirtækja og orðsendingu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samkeppnishæfni bankakerfisins, þess hluta er snýr að einföldun eiginfjárauka. Þá fékk nefndin kynningu á drögum að stefnu Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika og þjóðhagsvarúð. Einnig fékk nefndin kynningu á stöðugleikamyntum og mögulegum áhrifum þeirra á fjármálastöðugleika.

Fjármálastöðugleikanefnd ákvað einróma að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% af innlendum áhættugrunni. Gildi hans er því áfram við efri mörk bilsins 2–2,5% sem nefndin hefur markað sem hlutlaust gildi þegar hvorki eru merki um aukna né litla áhættu í fjármálakerfinu.