Heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 105,0 m. evra í maí sl., að jafnvirði 15,7 ma.kr. Hlutur Seðlabanka Íslands af gjaldeyrisveltu í maí var enginn.
Meðalgengi evru lækkaði gagnvart krónu um 0,4% milli apríl og maí.
Sjá nánari sundurliðun á gjaldeyrismarkaði í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is