Seðlabanki Íslands hefur frá árinu 2018 staðfest að hann fylgi alþjóðlegum reglum um bestu framkvæmd gjaldeyrisviðskipta, svokölluðum FX Global Code.
Í desember á síðasta ári var gefin út uppfærð útgáfa af FX Global Code. Seðlabankinn hefur kynnt sér uppfærsluna og gert viðeigandi ráðstafanir til að tryggja hlítni við reglurnar, eftir því sem við á. Seðlabankinn hvetur mótaðila sína í gjaldeyrisviðskiptum til að kynna sér uppfærsluna og, eftir atvikum, gera ráðstafanir til að uppfylla viðmið reglnanna.
Víðtæk alþjóðleg samstaða ríkir um innihald reglnanna og teljast þær mikilvægur liður í að efla traust og heilbrigði á gjaldeyrismörkuðum.