Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 103,8 ma.kr. í febrúar sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 43,0 ma.kr en velta kreditkorta var 60,8 ma.kr.
Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í febrúar sl. nam 79,8 ma.kr. sem er aukning um 4,0 ma.kr. miðað við febrúar á síðasta ári. Skiptist veltan þannig að velta debetkorta var 34,4 ma.kr en velta kreditkorta var 45,4 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 21,6 ma.kr. í febrúar sl. sem er 1,7 ma.kr hærri velta miðað við febrúar 2023.
Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í febrúar 2024 var 18,7 ma.kr. og stendur í stað miðað við febrúar 2023.
Tölur eru byggðar á upplýsingum frá íslenskum færsluhirðum og kortaútgefendum.
Vinsamlegast athugið að frá og með septembermánuði 2020 er innlend debetkortavelta í bönkum og hraðbönkum undanskilin í kortaveltutölum. Sama gildir um greiðslur kreditkorta m.v. innheimtutímabil.
Sjá nánari sundurliðun á greiðslumiðlun í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is