Fara beint í Meginmál

Greiðslumiðlun í febrúar 2026 17. mars 2026

Febrúar 2026

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 119,1 ma.kr. í febrúar sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 50,5 ma.kr en velta kreditkorta var 68,5 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands febrúar sl. nam 88,6 ma.kr. sem er 3,3 ma.kr. hærri velta en í febrúar á síðasta ári. Veltan í febrúar sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 37,3 ma.kr en velta kreditkorta var 51,3 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 28,2 ma.kr. í febrúar sl. sem er 2,7 ma.kr hærri velta en í febrúar á síðasta ári.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í febrúar 2026 var 21,5 ma.kr. sem er 0,2 ma.kr. lægri velta en í febrúar 2025.

Tímaraðir: GRM_Timaradir_022026.xlsx

Tafla: GRM_022026.xlsx

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is