Fara beint í Meginmál

Greiðslumiðlun í janúar 2026 17. febrúar 2026

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 125,6 ma.kr. í janúar sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 53,8 ma.kr en velta kreditkorta var 71,7 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands janúar sl. nam 93,2 ma.kr. sem er 4,8 ma.kr. hærri velta en í janúar á síðasta ári. Veltan í janúar sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 39,5 ma.kr en velta kreditkorta var 53,7 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 29,8 ma.kr. í janúar sl. sem er 4,1 ma.kr hærri velta en í janúar á síðasta ári.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í janúar 2026 var 18,6 ma.kr. sem er 0,5 ma.kr. lægri velta en í janúar 2025.

Tímaraðir: GRM_Timaradir_012026.xlsx

Tafla: GRM_012026.xlsx

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is