Fara beint í Meginmál

Greiðslumiðlun í mars 2026 17. apríl 2026

Mars 2026

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 131,7 ma.kr. í mars sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 54,6 ma.kr en velta kreditkorta var 77,0 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í mars sl. nam 98,2 ma.kr. sem er 2,9 ma.kr. hærri velta en í mars á síðasta ári. Veltan í mars sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 40,4 ma.kr en velta kreditkorta var 57,8 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 31,0 ma.kr. í mars sl. sem er 3,2 ma.kr hærri velta en í mars á síðasta ári.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í mars 2026 var 24,7 ma.kr. sem er 0,2 ma.kr. lægri velta en í mars 2025.

Tímaraðir:GRM_Timaradir_032026.xlsx

Tafla: GRM_032026.xlsx

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is