Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 127,2 ma.kr. í nóvember sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 56,6 ma.kr en velta kreditkorta var 70,6 ma.kr.
Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands nóvember sl. nam 97,1 ma.kr. sem er 2,4 ma.kr. hærri velta en í nóvember á síðasta ári. Veltan í nóvember sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 43,3 ma.kr en velta kreditkorta var 53,8 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 27,5 ma.kr. í nóvember sl. sem er 3,0 ma.kr hærri velta en í nóvember á síðasta ári.
Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í nóvember 2024 var 20,7 ma.kr. sem er 2,1 ma.kr. hærri velta en í nóvember 2023.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is