Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 136,2 ma.kr. í október sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 59,5 ma.kr en velta kreditkorta var 76,7 ma.kr.
Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands október sl. nam 100,1 ma.kr. sem er 7,1 ma.kr. hærri velta en í október á síðasta ári. Veltan í október sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 43,5 ma.kr en velta kreditkorta var 56,5 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 33,2 ma.kr. í október sl. sem er 4,4 ma.kr hærri velta en í október á síðasta ári.
Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í október 2025 var 27,3 ma.kr. sem er 3,0 ma.kr. lægri velta en í október 2024.
Tímaraðir:GRM_Timaradir_102025.xlsx
Tafla:GRM_102025.xlsx
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is