Fara beint í Meginmál

Halli á viðskiptajöfnuði 30,5 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2024 - hrein staða við útlönd jákvæð um 38,9% af VLF 3. september 2024

Á öðrum ársfjórðungi 2024 var 30,5 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 3,3 ma.kr. betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 36,6 ma.kr. lakari en á sama fjórðungi árið 2023. Halli á vöruskiptajöfnuði var 89,5 ma.kr. en 67,2 ma.kr. afgangur á þjónustujöfnuði (Sjá á vef Hagstofunnar).

Frumþáttatekjur skiluðu 5,4 ma.kr. afgangi en rekstrarframlög 13,7 ma.kr. halla (tafla 1).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2024 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Tafla 1: Greiðslujöfnuður (ma.kr.)

2024/22024/12023/42023/32023/2
Viðskiptajöfnuður-30,5-33,8-23,2
81,8
6,1
   Vöruskiptajöfnuður-89,5-55,5-76,8-84,4-82,6
   Þjónustujöfnuður67,217,937,3155,088,9
   Jöfnuður frumþáttatekna5,414,428,623,011,3
   Rekstrarframlög, nettó-13,7
-10,6
-12,3
-11,8
-11,6
Jöfnuður fjárframlaga-1,4-0,8-1,4-0,7-0,9
Fjármagnsjöfnuður-39,9
11,1
68,8
-48,4-30,9
   Bein fjárfesting18,410,8
96,6-130,4-3,5
   Verðbréf59,1-202,392,999,5-74,8
   Afleiður1,5-0,1-3,7-6,9-2,6
   Önnur fjárfesting-97,682,9-120,992,5-73,1
   Gjaldeyrisforði-21,4119,84,0-6,3-26,4
   Sekkjur og vantalið, nettó-8,0
45,7
93,4
-32,7-36,1
Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.705 ma.kr. eða 38,9% af vergri landsframleiðslu (VLF) og versnaði um 47 ma.kr. eða 1,1% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.173 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.468 ma.kr. Á fjórðungnum versnaði staðan um 40 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Erlendar eignir lækkuðu um 132 ma.kr. og skuldir um 92 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar hækkuðu virði eigna á ársfjórðungnum um 19 ma.kr. og lækkuðu virði skulda um 6 ma.kr. og leiddu því til 24 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar hækkaði um tæp 0,3% miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hækkaði um 2,2% milli fjórðunga en verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði lækkaði um 3,3%.

Tafla 2: Breyting á erlendri stöðu þjóðarbúsins á milli ársfjórðunga (ma.kr.)

Staða í lok 2024/2FjármagnsjöfnuðurGengis- og verðbreytingarAðrar breytingarStaða í lok 2024/1
Erlendar eignir, alls6.173-132
19
88
6.199
   Bein fjárfesting1.063-11-287990
   Verðbréf3.548-12803.521
   Afleiður*52-408
   Önnur fjárfesting669-10011767
   Gjaldeyrisforði88-21-30912
Erlendar skuldir, alls4.468-92
-6
119
4.446
   Bein fjárfesting1.628-3011161.541
   Verðbréf1.537-60-501.602
   Afleiður*130-1014
   Önnur fjárfesting1.290-3031.290
Hrein staða þjóðarbúsins1.7054024
-32
1.753
Hlutfall af VLF (%)38,9
0,90,6
0,739,9

*Aðrar breytingar eru taldar undir gengis- og verðbreytingum fyrir afleiður

Frétt nr. 12/2024