Fara beint í Meginmál

Halli á viðskiptajöfnuði 82,3 ma.kr. á öðrum fjórðungi vegna mikils halla á vöruskiptum 4. september 2025

Halli á viðskiptajöfnuði við útlönd var 82,3 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2025 eða 6,8% af landsframleiðslu og jókst um 25,9 ma.kr. milli ársfjórðunga og um 44,8 ma.kr. frá sama fjórðungi árið 2024. Halli á viðskiptajöfnuði litast af fjárfestingarumsvifum gagnavera sem hefur leitt til þess að vöruskiptahallinn mælist sögulega mikill. Hann mældist neikvæður um 135,2 ma.kr. en 61,8 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Afgangur á frumþáttatekjum nam 3,9 ma.kr. en 12,8 ma.kr. halli á rekstrarframlögum. (tafla 1).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta ársfjórðungi 2025 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Tafla 1: Greiðslujöfnuður

Ma.kr.2024/22024/32024/42025/12025/2
Viðskiptajöfnuður-37,444,2-91,3
-56,4
-82,3
   Vöruskiptajöfnuður-88,6-72,6-105,1-85,9-135,2
   Þjónustujöfnuður65,7133,755,119,861,8
   Jöfnuður frumþáttatekna-1,2-6,6-26,222,23,9
   Rekstrarframlög, nettó-13,4
-10,3
-15,0
-12,4
-12,8
Jöfnuður fjárframlaga-1,2-0,3-1,0-0,8-0,9
Fjármagnsjöfnuður21,4
77,3
-113,4
22,8-94,8
   Bein fjárfesting41,8-15,2
-347,7-44,4-59,4
   Verðbréf105,427,5183,166,3-96,7
   Afleiður1,5-2,8-3,60,0-1,1
   Önnur fjárfesting-106,069,945,76,516,4
   Gjaldeyrisforði-21,4-2,19,2-5,645,9
   Skekkjur og vantalið, nettó60,0
33,4
-21,1
80,0-11,7
Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 2.089 ma.kr. eða 43,9% af vergri landsframleiðslu (VLF) og versnaði um 91 ma.kr. eða 1,9% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.762 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.673 ma.kr. Á fjórðungnum versnaði staðan um 95 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Erlendar eignir hækkuðu um 97 ma.kr. og skuldir hækkuðu um 191 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar lækkuðu virði eigna á ársfjórðungnum um 105 ma.kr. og skulda um 116 ma.kr. og leiddu því til 11 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar hækkaði um tæp 2,8% í fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hækkaði um 11,0% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði lækkuðu um 1,6%.

Tafla 2: Breyting á erlendri stöðu þjóðarbúsins á milli ársfjórðunga

Ma.kr.Staða í lok 2025/1FjármagnsjöfnuðurGengis- og verðbreytingarAðrar breytingarStaða í lok 2025/2
Erlendar eignir, alls6.76397
-105
7
6.762
   Bein fjárfesting1.113-22-26111.076
   Verðbréf3.94561-3103.976
   Afleiður*20-1-4015
   Önnur fjárfesting82013-26-4803
   Gjaldeyrisforði86546-180893
Erlendar skuldir, alls4.583191
-116
14
4.673
   Bein fjárfesting1.82637-70181.811
   Verðbréf1.495158-1001.643
   Afleiður*90-207
   Önnur fjárfesting1.252-4-33-31.212
Hrein staða þjóðarbúsins2.180-9511
-7
2.089
(%) af VLF 45,8%
-2,0%0,2%
-0,1%43,9%
*Aðrar breytingar eru taldar undir gengis- og verðbreytingum fyrir afleiður.
Frétt nr. 13/2025