Fara beint í Meginmál

Halli á viðskiptajöfnuði 95,2 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi 2024 – hrein staða við útlönd jákvæð um 42,5% af VLF 6. mars 2025

Á fjórða ársfjórðungi 2024 var 95,2 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 147,4 ma.kr. lakari niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 77,7 ma.kr. lakari en á sama fjórðungi árið 2023. Halli á vöruskiptajöfnuði var 104,1 ma.kr. en 34,5 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. (Sjá á vef Hagstofunnar).

Halli á frumþáttatekjum nam 10,5 ma.kr. og 15,1 ma.kr. á rekstrarframlögum (tafla 1).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2024 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Tafla 1: Greiðslujöfnuður

Ma.kr.2023/42024/12024/22024/32024/4
Viðskiptajöfnuður-17,5-34,6-39,3
52,3
-95,2
   Vöruskiptajöfnuður-77,8-51,6-87,2-71,6-104,1
   Þjónustujöfnuður34,118,167,9141,234,5
   Jöfnuður frumþáttatekna39,110,2-5,4-4,9-10,5
   Rekstrarframlög, nettó-13,0
-11,3
-14,6
-12,4
-15,1
Jöfnuður fjárframlaga-1,4-0,8-1,4-0,4-1,2
Fjármagnsjöfnuður-4,2
35,9
-40,9
65,879,4
   Bein fjárfesting21,39,0
-16,4-18,115,7
   Verðbréf96,0-191,6105,427,5109,6
   Afleiður-3,70,11,5-2,8-3,6
   Önnur fjárfesting-121,898,5-110,169,1-52,3
   Gjaldeyrisforði4,0119,8-21,4-9,99,9
   Sekkjur og vantalið, nettó14,7
71,3
-0,3
14,0175,7
Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.963 ma.kr. eða 42,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 120 ma.kr. eða 2,6% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.549 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.586 ma.kr. Á fjórðungnum batnaði staðan um 79 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Erlendar eignir jukust um 140 ma.kr. og skuldir um 61 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar juku virði eigna á ársfjórðungnum um 21 ma.kr. en minnkuðu virði skulda um 30 ma.kr. og leiddu því til 51 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar hækkaði um tæp 3,5% á ársfjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum lækkaði um 0,4% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði hækkaði um 16,3%.

Tafla 2: Breyting á erlendri stöðu þjóðarbúsins á milli ársfjórðunga

Ma.kr.Staða í lok 2024/3FjármagnsjöfnuðurGengis- og verðbreytingarAðrar breytingarStaða í lok 2024/4
Erlendar eignir, alls6.383140
21
5
6.549
   Bein fjárfesting1.06227-26201.083
   Verðbréf3.6871448203.912
   Afleiður*16-44117
   Önnur fjárfesting720-37-16-16650
   Gjaldeyrisforði89910-230886
Erlendar skuldir, alls4.54061
-30
15
4.586
   Bein fjárfesting1.75011-591.765
   Verðbréf1.52835-1701.545
   Afleiður*1001011
   Önnur fjárfesting1.25315-961.264
Hrein staða þjóðarbúsins1.8437951
-10
1.963
(%) af VLF 39,9%
1,7%1,1%
-0,2%42,5%

*Aðrar breytingar eru taldar undir gengis- og verðbreytingum fyrir afleiður

Frétt nr. 19/2024