Eignir innlánsstofnana námu 6.165,7 ma.kr. í lok desember og lækkuðu um 83,6 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.509,6 ma.kr. og lækkuðu um 77,8 ma.kr. Erlendar eignir námu 656,1 ma.kr. og lækkuðu um 5,8 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.158,8 ma.kr. og lækkuðu um 97,2 ma.kr. í desember. Erlendar skuldir námu 1.154 ma.kr. og hækkuðu um 9,4 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 852,8 ma.kr. í lok desember og hækkaði um 4,1 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 55,6 ma.kr. í lok desember, þar af voru verðtryggð lán 4,3 ma.kr., óverðtryggð lán 19,6 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 29,4 ma.kr. og eignarleiga 2,3 ma.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 6,4 ma.kr. í desember, þar af námu lán með veði í íbúð 1,9 ma.kr. sem var 1,4 ma.kr. lækkun frá nóvember.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is