Eignir innlánsstofnana námu 6.291,8 ma.kr í lok febrúar og hækkuðu um 28,8 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.609,4 ma.kr. og hækkuðu um 34,6 ma.kr. Erlendar eignir námu 682,5 ma.kr. og lækkuðu um 5,8 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.250,9 ma.kr. og hækkuðu um 14,3 ma.kr. í febrúar. Erlendar skuldir námu 1.172,1 ma.kr. og hækkuðu um 11,9 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 868,8 ma.kr. í lok febrúar og hækkaði um 2,6 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 59,1 ma.kr. í lok febrúar, þar af voru verðtryggð lán -3,4 ma.kr., óverðtryggð lán 34,6 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 23,4 ma.kr. og eignarleiga 4,5 ma.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 9,5 ma.kr. í febrúar, þar af námu lán með veði í íbúð 5,1 ma.kr. sem var 1,1 ma.kr. hækkun frá janúar.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is