Fara beint í Meginmál

Innlánsstofnanir í júní 2024 25. júlí 2024

Eignir innlánsstofnana námu 5.589 ma.kr. í lok júní og lækkuðu um 27,8 ma.kr í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.179,5 ma.kr. og hækkuðu um 48,1 ma.kr. Erlendar eignir námu 409,5 ma.kr. og lækkuðu um 75,9 ma.kr. Innlendar skuldir voru 3.880,6 ma.kr. og hækkuðu um 10,6 ma.kr. Erlendar skuldir námu 911,6 ma.kr. og lækkuðu um 40,8 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 796,7 ma.kr. í lok júní og hækkaði um 2,4 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 48,2 ma.kr., þar af voru verðtryggð lán 40,2 ma.kr., óverðtryggð lán -239 m.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 5,8 ma.kr. og eignarleiga 2,4 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 16,3 ma.kr. í júní, þar af námu lán með veði í íbúð 14,0 ma.kr. sem var 10,7 ma.kr. aukning frá maí.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is