Fara beint í Meginmál

Innlánsstofnanir í nóvember 2025 23. desember 2025

Eignir innlánsstofnana námu 6.249,2 ma.kr. í lok nóvember og hækkuðu um 77,7 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.587,4 ma.kr. og hækkuðu um 77,7 ma.kr. Erlendar eignir námu 661,9 ma.kr. og hækkuðu um 56 m.kr. Innlendar skuldir voru 4.256 ma.kr. og hækkuðu um 23,8 ma.kr. í nóvember. Erlendar skuldir námu 1.144,5 ma.kr. og hækkuðu um 50,4 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 848,7 ma.kr. í lok nóvember og hækkaði um 3,5 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 67,4 ma.kr. í lok nóvember, þar af voru verðtryggð lán 9,3 ma.kr., óverðtryggð lán 27,9 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 28,6 ma.kr. og eignarleiga 1,6 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 7,7 ma.kr. í nóvember, þar af námu lán með veði í íbúð 3,3 ma.kr. sem var 2,2 ma.kr. lækkun frá október.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is