Eignir innlánsstofnana námu 6.171,5 ma.kr. í lok október og hækkuðu um 43,2 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.509,7 ma.kr. og hækkuðu um 88,9 ma.kr. Erlendar eignir námu 661,8 ma.kr. og lækkuðu um 45,6 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.232,2 ma.kr. og hækkuðu um 27,8 ma.kr. í október. Erlendar skuldir námu 1.094,2 ma.kr. og hækkuðu um 11,4 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 845,2 ma.kr. í lok október og hækkaði um 4 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 40 ma.kr. í lok október, þar af voru verðtryggð lán 13,8 ma.kr., óverðtryggð lán 17,4 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 6,9 ma.kr. og eignarleiga 2 ma.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 8,4 ma.kr. í október, þar af námu lán með veði í íbúð 5,5 ma.kr. sem var 460 m.kr. lækkun frá september.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is